Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 9500 kr eða meira.

Almennir viðskiptaskilmálar Mánagull

Almennt:

Mánagull er vörumerki sem rekið er af íslenska fyrirtækinu Plöntuveggir ehf (480920-0820) og selur plöntuveggi til fyrirtækja og einstaklinga. Fyrirtækið rekur enga eiginlega verslun. Veggirnir samanstanda af annarsvegar bökkum sem innfluttir eru frá Noregi og eru úr endurunnu plasti og hinsvegar plöntunni Mánagull sem er harðgerð planta sem auðvelt er að sinna. Einnig selur Mánagull þjónustu sem innifelur í sér umönnun veggjana, uppsetningu veggja og ýmsar vörur aðrar vörur svo sem stakar plöntur og blómapotta. Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Plöntuveggir ehf, www.managull.is. 

Um notkun vefsíðuwww.managull.is og vefverslunar gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.  Plöntuveggir ehf, kt. 4809200820, er staðsett að Fálkagötu 29. Símanúmer er +354 6973495. Plöntuveggir ehf áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.


Heimsending og ferill pantana:


Verð: 

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. Plöntuveggir ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

Vörur til einkanota: 

Vörurnar í vefverslun www.managull.is eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum án tilskilinna leyfa. Plöntuveggir ehf áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

Nákvæmni upplýsinga: 

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Greiðsluleiðir: 

Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. Plöntuveggir ehf er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt. 

Lög og varnarþing: 

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.