Nú þegar kólnar, hækkað er í ofnum og gluggarnir haldast lokaðir breytist loftið á vinnustaðnum. Margir kannast við þurrk í augum og hálsi, slen eftir hádegi og höfuðverk eftir langan fund. Í síðasta pistli fjölluðum við um hvernig plöntur bæta líðan og vinnuumhverfi. Hér ætlum við að skoða loftgæði innandyra og vera heiðarleg um hvað plöntur geta gert og hvað ekki.
Útiloftið á Íslandi er oftast gott, en það segir lítið um loftið í fundarherberginu klukkan þrjú á þriðjudegi. Samkvæmt Umhverfisstofnun Evrópu geta ýmis mengunarefni safnast fyrir innandyra, til dæmis ofnæmisvaldar, bakteríur og mygla þar sem raki er mikill, og kemísk efni úr hreinsiefnum, gólfefnum og húsgögnum. Algeng einkenni eru höfuðverkur, ógleði og erting í augum, nefi og hálsi.
Gott útiloft tryggir ekki gott inniloft. Spænsk rannsókn frá Madríd (Domínguez-Amarillo o.fl., 2020) sýndi fram á að á meðan útiloftið batnaði í samkomubanninu versnuðu loftgæði á heimilum fólks. Gluggum var haldið lokuðum til að spara orku, meira var notað af hreinsi- og sótthreinsiefnum, og styrkur rokgjarnra lífrænna efna (VOC) innandyra jókst um 37%. Sama mynstur er að finna á íslenskum skrifstofum á veturna þegar gluggar eru lokaðir, kynt er meira og mikið þrifið.
Góð innivist snýst því ekki bara um þægindi. Hún hefur áhrif á einbeitingu, afköst og hvort fólk mætir til vinnu.
Á veturna er rakastig á flestum íslenskum skrifstofum aðeins um 15 til 25%. Flestum líður best við 30 til 60% raka og almennt er mælt með að halda honum á bilinu 30 til 50%.
Hér geta plöntur hjálpað. Nær allt vatnið sem plantan fær fer á endanum út í loftið sem vatnsgufa. Ein planta í glugga breytir litlu, en margar plöntur saman, til dæmis í plöntuvegg, geta lagt sitt af mörkum. Plöntur hafa líka áhrif á hitastig með skugga og uppgufun.
Á fundi faghóps um aðstöðustjórnun hjá Stjórnvísi, „Gott inniloft fyrir gott starfsfólk“, lýsti Stefán Níels Guðmundsson, forstöðumaður eignaumsýslu hjá Eimskip, hvernig fyrirtækið hefur unnið að því að bæta loftgæði í Vöruhótelinu við Sundahöfn. Þar starfa tæplega 190 manns á um 3.200 fermetrum.
Eimskip setti sér skýr markmið.
Mælingarnar sýndu að rakastigið á veturna lá oft í kringum 20 til 25%, þrátt fyrir rakagjöfina. Þurrt loft er mælanleg staðreynd, og góð innivist er samspil loftræstingar, rakagjafar, efnisvals og plantna.
Frægasta rannsóknin um plöntur og loftgæði var gerð af NASA fyrir rúmum 30 árum, árið 1989, en þar voru plöntur settar í litla, lokaða klefa og loftgæði mæld. Nýrri samantekt (Cummings og Waring, 2019) bendir til þess að í venjulegu skrifstofurými þyrfti gríðarlegan fjölda plantna til að jafnast á við þau loftskipti sem góð loftræsting skilar. Loftræsting og opnir gluggar sinna grunnvinnunni.
Þetta þýðir samt ekki að plöntur skipti engu máli. Í sænskri rannsókn (Danielski o.fl., 2022) var fjölda plantna komið fyrir í tveimur kennslustofum í Mið-Svíþjóð, á svæði þar sem meðalhiti ársins er um 3°C og veturinn langur og dimmur, ekki ósvipað og hér. Koltvísýringur (CO₂) mældist um 10% lægri og hitastig var jafnara. Kennararnir upplifðu ferskara loft. Höfundarnir benda þó á að fleiri rannsókna sé þörf.
Það er áhugavert hve sterkt fólk upplifir loftgæði betri þegar plöntur eru í rýminu. Í bandarískri tilraun (Lohr og Pearson-Mims, 2000) var fólk beðið um að halda hendi í ísvatni í fimm mínútur. Fleiri þraukuðu í herbergi með plöntum en í herbergi án þeirra, einnig þegar hitt herbergið var skreytt litríkum hlutum. Þátttakendur mátu loftgæði í plönturýminu ferskara.
Nýleg rannsókn sem gerð var á tannlæknastofum (Elsadek o.fl., 2023) gaf svipaða mynd. Sjúklingar sem hvíldu sig í fimm mínútur í herbergi með plöntum eftir meðferð upplifðu meiri slökun, minni kvíða og fundu minna til en þeir sem hvíldu sig í herbergi án plantna.
Vellíðan starfsfólks ræðst ekki bara af því sem mælingar sýna, heldur líka af því hvernig fólki líður í rýminu.
Ef við viljum vita hvernig loftið er í raun á vinnustað er CO₂ góður mælikvarði á hvort loftskipti séu nægileg. Gildi undir 1000 ppm teljast ásættanleg; há gildi benda til þess að loftræsting sé ekki nóg miðað við fjölda fólks.
Ódýrir CO₂-mælar eru nokkuð áreiðanlegir. Ódýrir mælar fyrir svifryk og rokgjörn lífræn efni (VOC) eru hins vegar viðkvæmir fyrir hita og raka, og Rannsóknamiðstöð Evrópusambandsins (JRC) varar við að taka niðurstöður þeirra of bókstaflega.
Mánagull býður upp á umhirðuþjónustu fyrir fyrirtæki allt árið. Við komum reglulega í heimsókn, vökvum, gefum áburð, snyrtum og skiptum út plöntum þegar þörf krefur, hvort sem um er að ræða plöntuveggi eða pottaplöntur.
Katrín er með MSc í vinnusálfræði frá BI í Osló, þar sem hún rannsakaði áhrif lýsingar og innilofts á starfsánægju og þreytu starfsfólks.
Viltu vita hvað plöntur gætu gert fyrir þinn vinnustað í vetur? Hafðu samband og við komum í heimsókn.
Heimildir